Bjargtangaviti
  • Bjargtangaviti-vef

Bjargtangaviti

Núverandi Bjargtangaviti er annar í röðinni. Sá fyrri, núverandi Hvaleyrarviti, var reistur þar árið 1913 en fluttur brott árið 1948 þegar yngri Bjargtangavitinn var tekinn í notkun.

Bjargtangavitinn, sem Axel Sveinsson verkfræðingur og Einar Stefánsson húsateiknari hönnuðu, er einn hinna svokölluðu brúarvita því að bogadregin framhliðin og innbyggt ljóshúsið þykja í sameiningu minna á brú á skipi. Vitinn er 5,6 m á hæð, gerður úr steinsteypu og var upphaflega húðaður með ljósu kvarsi en hefur verið kústaður með hvítu þéttiefni.

Gasljós var í vitanum fram til 1961 að hann var rafvæddur.

Kirkjuhólsviti og Bjargtangaviti eru byggðir eftir sömu teikningu og svipar því mikið saman.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica