Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum
-
Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum
- Gömlu mjólkurstöðinni við Maríutröð, Reykhólum
Símar: 434 7830 og 894 1011 - Netfang: info [hjá] reykholar.is
- Vefur www.reykholar.is
Um safnið
Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð en að hluta allt fram á þennan dag. Fuglarnir gáfu egg og kjöt í matinn og æðarfuglinn gaf verðmætan dún í sængur og kodda. Selurinn gaf kjöt og spik og skinnið var notað til klæðagerðar. Breiðafjörðurinn og héruðin í kring hafa þá sérstöðu, að jafnvel í mestu hallærum og harðindum hérlendis varð þar aldrei bjargarskortur. Svo er fjölbreyttum hlunnindum fyrir að þakka. Á sýningunni getur að líta ýmsa þá fugla sem gáfu björg í bú, auk andstæðunnar, hafarnarins volduga, sem var illræmdur vágestur í æðarvarpi. Jafnframt eru breiðfirsku bátunum gerð góð skil, en þeir voru ein af helstu forsendum þess að hægt var að nýta hlunnindin.