Grund
Grund
Á Grundarkampi var einn af elstu kaupstöðum landsins. Hann fékk tvívegis kaupstaðarréttindi áður en hann var fluttur í Grafarnes, þar sem Grundarfjarðarkaupstaður stendur nú. Til eru heimildir frá fimmtándu öld um átök kaupmanna af ólíku þjóðerni á Grundarkampi. Fyrsta húsið sem vitað er til að þar hafi verið reist var byggt 1663 og stóð það enn á 18. öld. Grundarkampur var friðlýstur árið 1985.