Saltfisksetrið í Grindavík

Saltfisksetrið í Grindavík

,,Saltfiskur í sögu þjóðar“

Í glæsilegu 650 fm sýningarrými er sviðsett ferðalag í gegnum tímann, saga saltfiskverkunar frá upphafi rakin í tímaröð til þeirra daga er véltækni leysir mannshöndina af hómi. Ferðalangur fær á tilfinninguna að hann sé staddur í litlu sjávarþorpi frá 1930. Hönnuður sýningar er Björn G. Björnsson.

Saltfisksetur Íslands er byggt 2003. Húsið er 1250 fm og skiptist í 650 fm sýningarrými,320 fm listsýningarsal og  280 fm móttökusal. Í Saltfisksetrinu er rekin upplýsingamiðstöð Grindavíkur ásamt minjagripaverslun og kaffiteríu.


 



Til baka Prenta Senda

Flýtival